Ári eftir að vinnuveitendur og félög flestra starfsmanna þeirra gerðu tímamótasamning um þróun launa innan einkageirans stendur opinberi geirinn nú frammi fyrir kröfum um meiri hækkanir en fengust þá. Kröfunum fylgja hótanir um verkföll, sem verða enn viðameiri en yfirstandandi verkfall Eflingar.
Verði gengið að kröfum um meiri launahækkanir en samið var um í lífskjarasamningnum þá er friðurinn úti á vinnumarkaðnum í heild sinni.
Almennt launafólk sætti sig í fyrra við krónutöluhækkanir í ljósi ástandsins í efnahagslífinu og sem framlag til jöfnuðar í samfélaginu. Fyrir marga launamenn var lífskjarasamningurinn fórn. Fólk með meðaltekjur og þar yfir tók með honum þátt í að lyfta fólki á lægstu launum gegn því að bera hlutfallslega minna úr býtum sjálft.
Þetta fólk mun ekki láta það yfir sig ganga að opinberi markaðurinn stökkvi framúr. Það mun nota hvert tækifæri til að fá sams konar hækkanir eða meiri og þá fer verðbólguhjólið af stað. Miðað við yfirlýst tilboð Reykjavíkurborgar til Eflingar þá virðist stærsti vinnuveitandinn meðal sveitarfélaga þegar hafa gengið lengra en einkageirinn gerði fyrir ári.
Orðræða forystufólks Eflingar um skammarlega lág laun ófaglærðra starfsmanna á leikskólum og víðar hefur skiljanlega fengið mikinn hljómgrunn meðal almennings. Væri hægt að hækka allra lægstu launin, án þess að það hefði áhrif á önnur laun, má ætla að allgóð sátt yrði um það. Langflestir eru með mun hærri tekjur og geta illa ímyndað sér líf á útborguðum launum rétt yfir 200 þúsund krónum.
En umræðan um lægstu launin fór fram í fyrra og henni lauk með ákveðinni lausn, sem var kölluð lífskjarasamningur. Sá samningur var varnarsigur í erfiðri stöðu. Sú staða hefur ekkert batnað. Ekkert hefur gerst á þessum tæplega ellefu mánuðum sem eru liðnir frá lífskjarasamningnum sem réttlætir að setja hann í uppnám.
Einn er þó munur á samningsstöðu verkalýðsfélaganna. Nú er ekki verið að semja við fyrirtæki á markaði heldur við opinbera geirann. Forystufólk Eflingar, sem skrifaði undir lífskjarasamninginn í apríl í fyrra, sækir nú meira úr sjóðum hins opinbera en fékkst frá atvinnulífinu þá.
Dæmin um kauphækkanir hjá hinu opinbera eru ekki til eftirbreytni. Skemmst er að minnast ótrúlegra hækkana sem nánustu samstarfsmenn fyrrverandi ríkislögreglustjóra fengu síðastliðið haust og hækkana sem kjararáð sáluga úthlutaði og voru sem innspýting eiturs í kjaraviðræður árum saman.
Ríki og sveitarfélög þurfa að hafa hugfast að samningar á komandi vikum snúast ekki bara um kjör starfsmanna þeirra. Þeir snúast um stríð og frið á vinnumarkaði. Ef hið opinbera endar á að yfirbjóða einkageirann þá er úti um friðinn.
Höfundur er ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.